hvað er á döfinni?
12. júní 2026
12. júní
kl. 08:30 - 10:00

Hringferð 2026: Grindavík
Samtök atvinnulífsins fara í hringferð um landið undir yfirskriftinni „Rjúfum vítahringinn“. Á opnum fundum og í heimsóknum verður rætt um stöðu atvinnulífsins og þær aðgerðir sem þarf til að ná aftur stöðugleika í efnahagslífinu. Í pallborði verða: Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA Páll Erland, forstjóri HS Veitna Pétur Hafsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis Guðbjörg Kristmundsdóttir, formaður VSFK Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar Með hringferðinni vill SA draga fram hvernig hægt er að styrkja samkeppnishæfni, bæta rekstrarskilyrði og skapa grundvöll fyrir aukin lífsgæði um allt land. Á fundunum verður lögð áhersla á opna umræðu um áskoranir og tækifæri á hverjum stað. Hringferðin er liður í því að byggja upp sameiginlegan skilning á því hvað þarf til að rjúfa vítahring óstöðugleika og skapa sterkari grunn fyrir íslenskt atvinnulíf. Þann 12. júní verðum við á Bryggjunni í Grindavík. Húsið opnar 8:15.

Algengar spurningar
Get ég fengið aðstoð frá lögmanni með starfsmannamál?
Já, ef þú ert félagsmaður getur þú fengið lögfræðilega aðstoð við túlkun kjarasamninga og stjórn starfsmannamála, sem hafa að gera með ráðningar, uppsagnir, vinnutíma, veikindarétt, orlof og fleira. Þú getur sent tölvupóst á sa@sa.is, hringt í síma 591 0000 eða haft beint samband við þinn tengilið á vinnumarkaðssviði SA.
Hvar sæki ég um félagsaðild?
Hvar finn ég ráðningarsamninga?
Undir Eyðublöð hér á vefnum geta félagsmenn nálgast fjölbreytt form af ráðningarsamningum ásamt fylgiskjölum bæði á íslensku og ensku. Félagsmenn geta einnig fengið aðstoð við gerð ráðningarsamninga hjá lögmönnum vinnumarkaðssviðs SA.
Þarf ég að semja um fjarvinnu?
Já, ef það er samkomulag um að starfsmaður sinni reglulega eða alfarið utan starfstöðvar félagsins, t.d. á heimili sínu þarf að semja um fjarvinnu. Félagsmenn SA geta nálgast nánari umfjöllun um fjarvinnu hér á vinnumarkaðsvefnum auk sniðmáts að samkomulagi um fjarvinnu á íslensku og ensku undir „Eyðublöð“.
Hvernig get ég komið upplýsingum á framfæri til ykkar?
Það er keppikefli Samtaka atvinnulífsins að skapa fyrirtækjum landsins sem best umhverfi til þess að vaxa og dafna. Við tökum því öllum ábendingum fagnandi, hvort sem það lítur að innra starfi okkar eða hagsmunamáli fyrir þitt fyrirtæki. Þér er velkomið að hafa samband í 591 0000 eða senda póst á sa@sa.is.